Viðskipti innlent

Svona breytast ráðstöfunartekjur þínar við skattkerfisbreytingarnar

ingvar haraldsson skrifar
Hér má sjá hve mikið ráðstöfunartekjur lauanfólks aukast með skattkerfisbreytingum ríkisstjórnarinnar sem að fullu verða komnar til framkvæmda árið 2017.
Hér má sjá hve mikið ráðstöfunartekjur lauanfólks aukast með skattkerfisbreytingum ríkisstjórnarinnar sem að fullu verða komnar til framkvæmda árið 2017. mynd/vísir
Þeir sem eru með 730 þúsund krónur í tekjur á mánuði munu hagnast mest á boðuðum skattkerfisbreytingum ríkisstjórnarinnar sé horft á krónutöluhækkun samkvæmt útreikningum ASÍ eða um 144 þúsund krónur á ári. Minnst fá þeir sem eru á lægstu laununum en ráðstöfunartekjurnar munu aukast eftir því sem ofar dregur upp að 730 þúsund krónum en í fara lækkandi af hærri launum en það líkt og sjá má í töflunni hér að ofan.

Ráðstöfunartekjur aukast með auknum tekjum

Þannig munu ráðstöfunartekjur þeirra sem fá greitt 300 þúsund krónur á mánuði aukast um 12 þúsund krónur á ári frá ársbyrjun 2017. Ráðstöfunartekjur launamanna með 400 þúsund krónur munu aukast um 38 þúsund krónur á á ári og þeirra með 500 þúsund krónur í mánaðarlaun um 70 þúsund krónur á ári.

Ráðstöfunartekjur fólks með milli 595 og 785 þúsund krónur munu aukast yfir 100 þúsund krónur á ári. Þá munu ráðstöfunartekjur þeirra sem fá greitt yfir 830 þúsund krónur á mánuði aukast jafn mikið eða um 38 þúsund krónur á ári þegar breytingarnar verða komnar að fullu til framkvæmda árið 2017.



Ríkissjóður verður af 16 milljörðum
á kjörtímabilinu

Ríkisstjórnin tilkynnti fyrir helgi að hún hygðist lækka skattprósentu í lægra skattþrepi úr 22,86% í 22,68% frá ársbyrjun 2016 og í 22,50% frá ársbyrjun 2017. Þá hyggst hún lækka álag á milliskattþrep um helming frá ársbyrjun 2016 í 1,22% en að fullu afnumið frá árslokum þess árs. Því verði tekjuskattþrepin tvö frá ársbyrjun 2017.

Fjárhæðarmörk við efsta þrep verður lækkað í 770 þúsund krónur á mánuði við árslok 2015 og skil milli þrepanna tveggja verður þá við 700 þúsund krónur þegar breytingarnar eru að fullu komnar fram. Álag á efra prósentið verður þá 9,3 prósent.

Ríkisstjórnin áætlar að breytingarnar á tekjuskattskerfinu valdi ríkissjóði um 16 milljarða króna tekjumissi á kjörtímabilinu eða sem nemur 13 prósent af tekjum ríkisins af tekjuskattskerfinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×