Bílar

Svona á að taka beygju

Finnur Thorlacius skrifar
Í ralli eru hestöflin ekki spöruð og nokkrir sénsarnir víst teknir. Það sanna hér ökumaðurinn Oscar Barroso og aðstoðarökumaður hans David Miguez í Librada Ralley Ourense á Spáni í fyrra á Suzuki bíl sínum.

Hvort að meiningin hafi verið að spara dekkin vinstra megin á bílnum, sýna hvernig á að taka beygjur í ralli eða sækja besta tímann skal ósagt látið, en flott er hún. Þessi magnaða beygja gæti verið met á tveimur hjólum í rallkeppni, en taktarnir verðskulda eiginlega verðlaunin „flottasta beygjan“.

Ef rýnt er á ökumanninn og aðstoðarökumann hans sést að þegar bíllinn fer uppá tvö dekkin reyna þeir að halla sér í hina áttina til að ná bílnum aftur á hin dekkin líka. Vel gert!




Fleiri fréttir

Sjá meira


×