Sport

Svona á að ná lausum tönnum úr barni | Myndband

mynd/twitter
Ólympíumeistarinn í tugþraut árið 2008, Bryan Clay, fer óhefðbundnar leiðir til þess að ná lausum tönnum úr börnunum sínum.

Dóttir hans, Ellie, var með lausa tönn og til þess að ná henni úr setti hann spotta utan um tönnina. Á hinum enda bandsins var síðan spjót sem Clay kastaði til þess að losa tönnina.

Frumlegt en það virkaði og dóttirin fann ekkert fyrir þessu. Clay segir að hún hafi átt hugmyndina sjálf.

Sjá má þessa ótrúlegu aðferð hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×