Fótbolti

Svona á að losna við fótboltabullur | Myndband

Fótboltabullur eru víða til vandræða. Líka í Svíþjóð. Þar tók lögreglan til sinna mála svo hægt væri að losa sig hratt við bullurnar.

Það sló í brýnu á milli stuðningsmanna AIK og Djurgården á dögunum. Slagsmálin áttu sér stað á lestarstöð.

Lögreglan mætti á svæðið og reyndi að svæla bullurnar í burtu. Var meðal annars brugðið á það ráð að setja rúllustiga á fullan hraða.

Það útspil kom bullunum í opna skjöldu og þeir áttu fótum sínum fjör að launa í rúllustiganum hraðskreiða. Þetta atvik má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×