Sport

Sviptur silfurverðlaunum frá ÓL 2012

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ferill Apti er á enda.
Ferill Apti er á enda. vísir/getty
Rússneski lyftingakappinn Apti Aukhadov hefur misst silfurverðlaun sín frá ÓL í London árið 2012.

Sterar fundust í sýni lyftingakappans en það er enn verið að fara yfir sýni frá ÓL 2008 og 2012 með nýjustu tækni. Þó nokkrir íþróttamenn hafa fallið eftir að byrjað var að skoða sýnin upp á nýtt.

Alls hafa 98 sýni komið jákvætt út en þau sluppu öll í gegn á sínum tíma.

Sá er fékk bronsið í mínus 85 kílóa flokki í London fær nú silfrið og maðurinn í fjórða sæti fær óvænt verðlaun nokkrum árum of seint.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×