Innlent

Svínum slátrað í gær: Ekki samkeppnisbrot að halda vörum af markaði

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Síld og fiskur gaf út yfirlýsingu í gær og fengu í kjölfarið heimild til slátrunar.
Síld og fiskur gaf út yfirlýsingu í gær og fengu í kjölfarið heimild til slátrunar. Vísir/Auðunn
Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemdir við að svínaræktendur gefi út yfirlýsingu þess efnis að vörum verði haldið frá markaði. Stofnunin hefur svarað erindi Síldar og fisks þess efnis. Slátrun hófst hjá fyrirtækinu í gær.



Slátrun á svínum hófst hjá Síld og fiski í gær eftir að svör höfðu borist frá Samkeppniseftirlitinu. Þá gaf fyrirtækið út yfirlýsingu þess efnis að svínum sem slátrað yrði færu í geymslu en afurðirnar ekki settar á markað. 



Sveinn Jónsson, framleiðslustjóri fyrirtækisins, segir að náðst hafi að bjarga verðmætum en fyrirtækið hafði gefið út að slátrað yrði í gær, sama hvort því kjöti yrði fleygt eða það nýtt. 



„Við vorum upplýstir um það að það yrðu ekki gerðar athugasemdir við það að við myndum lýsa því yfir að við myndum halda vörum af markaði. Þannig að við gátum í kjölfarið af því farið að slátra svínum á eðlilegan máta,” segir hann. 



Ekki hefur verið hægt að slátra vegna verkfalls dýralækna en undanþágunefnd Dýralæknafélags Íslands hefur gert kröfu um að þeir sem fái undanþágu til slátrunar gefi út yfirlýsingu um að vörurnar fari ekki í dreifingum. Slík yfirlýsing var gefin í gær. 



„Þessar vörur fara ekki í dreifingu. Við fengum leyfi til að 360 svínum sem leysir svona okkar helsta vanda. Það var byrjað að slátra í gær,“ segir hann.



Sveinn segir að með þessu hafi tekist að bjarga verðmætum og því afstýrt að henda þyrfti um eitt hundrað þúsund máltíðum.



„Því var afstýrt. Það hefði farið fram aflífun þennan dag en það bjargaðist, við náðum að bjarga verðmætunum á þennan hætt og það er bara farsæl lausn. Það hefði verið slæmt hefðu þessi verðmæti endað eins og leit út fyrir,“ segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×