Innlent

Svindlari nýtir sér erfiðan leigumarkað

Sveinn Arnarsson skrifar
Halldór áframleigði íbúð á Norðurbakkanum í Hafnarfirði.
Halldór áframleigði íbúð á Norðurbakkanum í Hafnarfirði. vísir/vilhelm
Svindlarinn margdæmdi Halldór Viðar Sanne virðist hafa fundið leið til að hafa milljónir af grandalausum leigjendum og nýtir sér ófremdarástand á húsnæðismarkaði og hátt leiguverð til að stinga undan miklum fjármunum. Einstaklingar sem telja sig svikna af Halldóri Viðari hafa mjög svipaðar sögur að segja þar sem dæmalaus svik, prettir og svindl koma við sögu.

Halldór Viðar auglýsti íbúð á Norðurbakkanum í Hafnarfirði á vefsíðunni Bland síðastliðið haust. Leigði hann Óskari Brynjólfssyni íbúðina og krafðist 700 þúsund króna í fyrirframgreidda leigu en leiguverð íbúðarinnar var 300 þúsund krónur á mánuði. Þetta fjölskyldufólk, í góðri trú, greiddi umsamda upphæð, flutti inn, og greiddi Halldóri leigu samviskusamlega.

„Í byrjun janúar er svo bankað upp á. Voru þar á ferðinni raunverulegir eigendur íbúðarinnar. Þá komst upp að íbúðin var ekkert í eigu Halldórs,“ segir Óskar. „Halldór Viðar greiddi því ekki leiguna til eigenda íbúðarinnar og stakk peningum okkar í eigin vasa. Hafði hann rúma eina og hálfa milljón króna af okkur.

Við höfum kært málið til lögreglu sem og eigandi íbúðarinnar. Við eigum samskipti við hann sem sýna hvernig hann fer að þessu,“ bætir Óskar við.

Svipaða sögu hefur Ingólfur Ágúst Hreinsson af viðskiptum við Halldór Sanne að segja. Halldór ætlaði að hjálpa honum að fá leigða íbúð í Perlukór í Kópavogi. Ingólfur segir Halldór hafa vélað hann til að leigja íbúðina á nafni Halldórs og sannfærði hann um að allir vildu leigja Halldóri íbúðir. Þegar yfir lauk hafði Halldór náð af honum um tveimur milljónum króna. „Ég eiginlega skammast mín fyrir að hafa látið manninn fara svona með mig en hann náði mér á flug. Ég kærði málið til lögreglu í haust,“ segir Ingólfur. „Rannsókn er hins vegar ekki hafin á þessu. Á meðan heldur hann áfram.“

Þessar sögur virðast ríma ágætlega við sögu Bergljótar Snorradóttur en hún hefur einnig kært Halldór fyrir að hafa af sér fé. Þá sagðist Halldór iðrast þeirra gjörða sinna en taldi sig nýjan og breyttan mann.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×