Bíó og sjónvarp

Svínafellsjökull áberandi í nýrri stiklu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Svínafellsjökull spilar stórt hlutverk í glænýrri stiklu fyrir stórmyndina Interstellar í leikstjórn Christophers Nolan. 

Kvikmyndin verður frumsýnd þann 7. nóvember næstkomandi en hluti hennar var tekinn upp á Svínfellsjökli hér á landi í fyrra. Íslenska framleiðslufyrirtækið Sagafilm aðstoðaði tökulið myndarinnar en alls unnu rúmlega þrjú hundruð manns við tökurnar á Íslandi.

Í nýju stiklunni fá kvikmyndaáhugamenn að vita meira um söguþráð myndarinnar en leikarinn Matthew McConaughey leikur mann sem er sendur út í geim til að viðhalda mannkyninu.

Í öðrum hlutverkum í myndinni eru Anne Hathaway, Matt Damon, John Lithgow, Casey Affleck og Jessica Chastain.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×