Viðskipti erlent

Svifbretti bönnuð í New York

Sæunn Gísladóttir skrifar
Krakkar í New York geta ekki lengur óskað sér svifbrettis í jólagjöf.
Krakkar í New York geta ekki lengur óskað sér svifbrettis í jólagjöf. Vísir/Getty
Börn í New York geta hætt við að biðja um svifbretti (e. hoverboard) í jólagjöf, þar sem þau eru bönnuð í borginni. 

Samkvæmt lögreglunni í New York og samgöngustofu borgarinnar eru svifbrettin ólögleg. Ef einstaklingur er gripinn á brettinu verður ekkert gert í fyrsta skiptið en síðan má sekta viðkomandi fyrir allt að sex þúsund krónur. 

Svifbrettin sem voru kynnt til leiks af Marty McFly í kvikmyndinni Back to the Future II eru að sjáfsögðu ekki til. Heldur er um að ræða nafn yfir tveggja hjóla bretti sem hægt er að halda jafnvægi á. 

Brettin eru vinsæl vestan hafs og eru mest selda íþróttvaran hjá Amazon í augnablikinu. Þau kosta milli 30 og 300 þúsund krónur. Frægt fólk, til að mynda söngkonan Lily Allen, eiga svoleiðis bretti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×