Erlent

Svíar vilja enn fá Assange

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Julian Assange Hefur verið í meira en tvö ár í sendiráði Ekvadors í London
Julian Assange Hefur verið í meira en tvö ár í sendiráði Ekvadors í London nordicphotos/AFP
Áfrýjunardómstóll í Svíþjóð hefur hafnað því að fella niður handtökuskipun á hendur Julian Assange, stofnanda Wikileaks.

Dómarinn sagði enga ástæðu til þess að fella niður handtökuskipunina þótt ekki væri mögulegt að framfylgja henni sem stendur.

Assange hefur verið í sendiráði Ekvadors í London í meira en tvö ár, eða frá því Ekvador veitti honum pólitískt hæli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×