Handbolti

Svíar lentu á frönskum vegg í seinni hálfleik

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Svíar áttu fá svör við Vincent Gerard í marki Frakka
Svíar áttu fá svör við Vincent Gerard í marki Frakka vísir/getty
Handboltastórveldin Frakkland og Svíþjóð áttust við í fyrri leik dagsins í milliriðli 1 á EM í handbolta í kvöld en bæði lið komu með fjögur stig inn í milliriðil. Frakkar unnu alla leiki sína í riðlinum á meðan Svíar töpuðu bara fyrir strákunum okkar.

Frakkar hafa spilað afar vel á mótinu og það hélt áfram í leiknum í kvöld þó Svíar hafi lengi vel náð að halda í við Frakkana. Staðan í leikhléi 8-10 fyrir Frakkland.

Þegar tæplega 15 mínútur lifðu leiks voru Svíar aðeins einu marki undir, 13-14, en þá settu Frakkar í lás og leiðir skildur.

Frakkar voru miklu betri á lokakaflanum og unnu að lokum sannfærandi sex marka sigur, 17-23. Frakkar því enn á sigurbraut og komnir langleiðina í undanúrslitin.

Vincent Gerard átti stórleik í marki Frakka en hann varði alls nítján skot. Cedric Sorhaindo var markahæstur hjá Frakklandi með fimm mörk en í liði Svía var Simon Jeppson markahæstur með fjögur mörk. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×