Erlent

Svíaprinsessa byrjar á útileikskóla

Atli Ísleifsson skrifar
Estelle kom í heiminn í febrúar 2012 og er því um tveggja og hálfs árs.
Estelle kom í heiminn í febrúar 2012 og er því um tveggja og hálfs árs. Vísir/AFP
Svíaprinsessan Estelle mun hefja leikskólagöngu sína á mánudaginn eftir helgi. Dóttir Viktoríu krónprinsessu og Daníels prins mun byrja á leikskólanum Äventyret í sveitarfélaginu Danderyd, norðan höfuðborgarinnar Stokkhólms.

Í tilkynningu frá sænsku konungsfjölskyldunni segir að leikskólinn Äventyret hafi opnað árið 1992. Er hann útileikskóli þar er mikið lagt upp úr því að börnin leiki sér utandyra auk þess að kynna börnunum fyrir náttúru og útivist.

Prinsessan Estelle Silvia Ewa Mary fæddist þann 23. febrúar 2012 og er því tveggja og hálfs árs gömul.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×