Erlent

Svíaprinsessa á von á öðru barni

Atli Ísleifsson skrifar
Sænsku konungshjónin, hér með dóttur sinni Madeleine og tengdasyninum Chris.
Sænsku konungshjónin, hér með dóttur sinni Madeleine og tengdasyninum Chris. Vísir/AFP
Madeleine, yngsta barn Karls Gústafs Svíakonungs og Silvíu drottningar, á von á sínu öðru barni með eiginmanni sínum Chris O‘Neill. Sænska hofið greindi frá þessu í hádeginu.

Von er á erfingjanum næsta sumar en fyrir eiga þau hjónin stúlkuna Leonore sem kom í heiminn í febrúar á þessu ári.

„Við erum mjög ánægð og hlökkum mikið til að bjóða nýjan meðlim fjölskyldunnar velkominn í heiminn,“ segja þau Madeleine og Chris í fréttatilkynningu.

Nóg verður um að vera hjá sænsku konungsfjölskyldunni næsta sumar en þá mun prinsinn, Karl Philip, ganga að eiga sína heittelskuðu Sofiu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×