Handbolti

Svíabönunum skellt á jörðina og sendar heim af EM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Slóvenska liðið fagnaði gríðarlega eftir sigurinn á Svíum en sá sigur dugði skammt því þær eru á leiðinni heim.
Slóvenska liðið fagnaði gríðarlega eftir sigurinn á Svíum en sá sigur dugði skammt því þær eru á leiðinni heim. Vísir/AFP
EM-ævintýri Slóvena entist bara í einn leik en liðið er á heimleið af EM kvenna í handbolta eftir tólf marka stórtap á móti Spáni.

Spænska liðið tapaði tveimur fyrstu leikjum sínum á mótinu og varð að vinna leikinn í kvöld til að komast áfram í milliriðla og þá með eins stórum mun og hægt var.

Spænsku stelpurnar svöruðu kallinu og tryggðu sér sæti í milliriðli með stórsigri, 30-18, eftir að hafa verið 14-5 yfir í hálfleik.

Pólland er líka úr leik eftir 23-22 tap á móti Þýskalandi. Þýska liðið tryggði sig áfram í spennuleik en pólska liðið tapaði öllum þremur leikjum sínum í riðlinum.

Slóvenar komu mjög mörgum á óvart með því að vinna gestgjafa Svía í síðasta leik sínum en Svíabönunum var heldur betur skellt á jörðina í dag.

Það var ljóst í byrjun að slóvenska liðið var ekki komið niður á jörðina eftir sigurinn á Svíum. Spánverjar komust í 6-1, 9-2 og voru síðan níu mörkum yfir í hálfleik, 14-5.

Slóvenar skoruðu þrjú fyrstu mörkin í seinni hálfleik en þær komust ekki lengra og hreinlega gáfust upp um miðjan hálfleikinn þegar spænsku stelpurnar skoruðu sex mörk í röð og komust í 28-15. Eftir það var formsatriði að klára leikinn.

Nerea Pena skoraði sex mörk fyrir Spán en Alexandrina Cabral var með fimm mörk. Markvörðurinn Silvia Navarro varði 18 skot og 53 prósent þeirra skota sem komu á hana. Tamara Mavsar, markahæsti leikmaður mótsins í fyrstu tveimur umferðunum, skoraði 5 mörk fyrir Slóveníu og varð markahæsti leikmaður liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×