Fótbolti

Sverrir Ingi og félagar upp úr botnsætinu

Henry Birgir Gunnarson skrifar
Sverrir Ingi í búningi Granada.
Sverrir Ingi í búningi Granada. vísir/getty
Sverrir Ingi Ingason var í byrjunarliði Granada í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld er liðið hélt hreinu og vann afar mikilvægan sigur.

Þá kom Las Palmas í heimsókn og Granada vann, 1-0. Það var Andreas Pereira sem skoraði eina mark leiksins með glæsilegu skoti utan teigs í fyrri hálfleik.

Þetta var aðeins annar sigur Granada í 21 leik í deildinni. Liðið fer úr 20. sætinu í það 19. með sigrinum og er jafnt að stigum við Sporting Gijon sem er í 18. sæti.

Það eru fimm stig upp í liðið í 17. sæti.

Sverrir Ingi átti mjög góðan leik í vörn Granada í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×