Handbolti

Svekkjandi jafntefli hjá Guðmundi Hólmari og Geir

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Geir reynir skot að marki Ivry.
Geir reynir skot að marki Ivry. vísir/getty
Guðmundur Hólmar Helgason, Geir Guðmundsson og félagar þeirra í Cesson-Rennes þurftu að horfa á eftir öðru stiginu í hendur Ivry þegar liðin mættust í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Eftir að hafa verið undir lengst af komst Cesson-Rennes yfir, 26-27, þegar tæp mínúta var til leiksloka.

En Ivry fékk víti í lokasókn sinni og Morten Vium Troelsen jafnaði metin úr því þegar leiktíminn var runninn út. Lokatölur 27-27.

Geir skoraði tvö mörk í leiknum og Guðmundur eitt. Þeir fengu sína brottvísunina hvor.

Cesson-Rennes er í 8. sæti deildarinnar með átta stig eftir tíu leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×