Innlent

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar: HÍ bregst því trausti að vera háskóli allra landsmanna

Atli Ísleifsson skrifar
Aðsókn að náminu hefur farið dvínandi og verið óviðunandi um nokkurn tíma.
Aðsókn að náminu hefur farið dvínandi og verið óviðunandi um nokkurn tíma. Vísir/Magnús Hlynur
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar mótmælir harðlega ákvörðun Háskóla Íslands að færa nám í íþrótta- og heilsufræði frá Laugarvatni til Reykjavíkur. Sveitarstjórnin segir að með þessari ákvörðun sé Háskóli Íslands að bregðast því trausti að vera háskóli allra landsmanna.

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar kom saman í dag vegna málsins.

Í tilkynningu frá sveitarfélaginu segir að það sé sveitarstjórn óskiljanlegt að Háskóli Íslands vilji ekki fara í öfluga og markvissa markaðssetningu á námi í íþrótta- og heilsufræði til að fjölga nemendum líkt og starfsmenn skólans, nemendur, þingmenn og sveitarstjórn Bláskógabyggðar hafi ítrekað lagt til.

„Að flytja starfsemina til Reykjavíkur mun ekki leysa þann vanda sem við er að etja. Það læðist að okkur sá grunur að aðrar ástæður en staðsetning, hagræðing rekstrar og fækkun nemenda séu ástæða þessarar ákvörðunar. Engin haldbær rök eru fyrir þessari ákvörðun háskólaráðs enda hefur allt ferlið í kringum þessa ákvarðanatöku verið með undarlegasta móti.

Í okkar huga er þetta hápólitískt byggðamál sem varðar spurninguna hvernig við viljum að landið okkar byggist upp í framtíðinni. Er stefnan sett á að sérhæfð störf sem krefjast menntunar verði á höfuðborgarsvæðinu á meðan landsbyggðin á að búa við einsleitni og lágt menntunarstig. Að störf á landsbyggðinni miðist eingöngu við grunnatvinnuvegina og ferðaþjónustu. Það  er varhugaverð þróun.

Óljósar mótvægisaðgerðir eins og minnst hefur verið á undanfarið eru oftar en ekki skyndilausnir sem halda ekki til lengdar og skorum við því á stjórnendur Háskóla Íslands að endurskoða þessa ákvörðun sína. Einnig trúum við því að þingmenn og ráðherra mennta- og menningarmála hafi ekki sagt sitt síðasta orð í þessu máli. Að okkar mati er mjög mikilvægt fyrir þjóðina sem heild að stuðlað sé að fjölbreytni í atvinnutækifærum og menntun um allt land en ekki bara á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Flaggað í hálfa stöng að Laugarvatni

Í bréfi frá Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands, til starfsmanna segir að aðstaða skólans verði áfram nýtt í þágu háskólans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×