Viðskipti innlent

Sveitarfélögin ekki spennt fyrir áburðarverksmiðjunni

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Þorlákshöfn er annar af tveimur stöðum sem nefndir eru í tillögu Framsóknarmanna.
Þorlákshöfn er annar af tveimur stöðum sem nefndir eru í tillögu Framsóknarmanna. Vísir / Ölfus
„Ég get bara sagt þér að við höfum ekkert rætt þetta,“ segir Gunnsteinn Ómarsson, bæjarstjóri sveitarfélagsins Ölfus, aðspurður hvort rætt hafi verið í bænum um möguleika á áburðarverksmiðju. Hann segir þó að heilt yfir séu menn ekki spenntir fyrir verkefnum sem geta haft truflandi áhrif á íbúa samfélagsins.



Þorlákshöfn er annar af tveimur stöðum sem nefndir eru vegna uppbyggingar áburðarverksmiðju í þingsályktunartillögu sjö þingmanna Framsóknarflokksins. Hinn staðurinn er Helguvík.



Þéttbýli við höfnina

Gunnsteinn segist þó ekki vita hvort áburðarverksmiðja hefði truflandi áhrif á samfélagið og segir að allar hugmyndir verði skoðaðar. „Það er ekki sama hvað er, en allt verður skoðað vandlega,“ segir hann. „Ég þekki ekki starfsemi svona áburðaverksmiðju.“

Bæjarstjórinn bendir hinsvegar á að höfnin, sem er ein af forsendum staðsetningar verksmiðjunnar, sé við þéttbýli. „Þannig að við erum kannski viðkvæm fyrir stóru og miklu inngripi,“ segir hann. „Nú veit maður í sjálfu sér ekki, að óskoðuðu, það verður auvðitað að skoða hvert einasta verkefni sérstaklega, en eins og ég segi, heilt yfir, eru verkefni sem hafa verulega truflandi áhrif á íbúa samfélagsins ekki ákjósanleg.“



Enginn sérstakur áhugi

Svipað er uppi á teningnum í Reykjanesbæ vegna Helguvíkur „Við undirrituðum í janúar 2013 viljayfirlýsingu um að skoða lóð fyrir þá. Síðan höfum við lítið heyrt í þeim,“ segir Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri atvinnu- og hafnarsviðs Reykjanesbæjar, um samskipti sín við áhugahópinn sem vísað er til í þingsályktunartillögunni. 



Samskipti á milli hópsins hófust samkvæmt Pétri í lok árs 2012 en síðustu samskipti áttu sér stað sumarið 2013. Hann segir engin sérstök spenna vera í bænum fyrir áburðarverksmiðjunni. „Nei ég segi það nú kannski ekki en við vildum skoða það. Við erum opnir fyrir öllum nýjum atvinnutækifærum.“ Pétur segir að ekki verði barist fyrir því að fá verksmiðjuna. „Nei alls ekki. Þetta er nú meira fyrir landbúnaðinn heldur en okkur.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×