Innlent

Sveitarfélag Skagafjarðar krefst opinberrar afsökunarbeiðni frá Birgittu

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Birgitta er formaður Pírata.
Birgitta er formaður Pírata.
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar krefst þess að Birgitta Jónsdóttir biðjist opinberlega afsökunar á ummælum sínum á Facebook. En þann 14. maí sagði hún: „Skagafjörður er Sikiley Íslands“ með frétt frá Stundinni sem fjallaði um skagfirsk áhrif á slit aðildarviðræðna ríkisstjórnar Íslands við Evrópusambandið. Byggðaráðið samþykkti ályktun um málið á fundi sínum í morgun.

„Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsir furðu sinni og fullri vanþóknun á ummælum Birgittu Jónsdóttur 8. þingmanns Reykjavíkur í garð Skagfirðinga og Skagafjarðar. Ummæli af þessu tagi lýsa fullu skilningsleysi þingmannsins á stöðu landsbyggðarinnar til viðhalds og uppbyggingar á atvinnu- og mannlífi og ákveðni Skagfirðinga til að standa vörð um þessa grunnþætti í sínu héraði,“ segir í ályktuninni.

 

Sveitarfélagið segir það með öllu ólíðandi og óverjandi að þingmaður gefi það í skyn að Skagafjörður sé mafíusamfélag sem þrífist á glæpum og glæpatengdri starfsemi. Það sæmi hvorki þingmanni né nokkrum öðrum.

Skagafjörður er Sikiley Íslands.

Posted by Birgitta Jónsdóttir on Thursday, May 14, 2015
Lágkúruleg umræða

„Er það von okkar Skagfirðinga að þingmaðurinn hefji umræðuna upp úr þeirri lágkúru sem þessi ummæli báru með sér og í þá veru að efla traust og tiltrú almennings á Alþingi, alþingismönnum og störfum þeirra. Er þess krafist að þingmaðurinn biðjist opinberlega afsökunar á ummælum sínum.“

Sjá einnig: KS ekki viðurstyggileg glæpasamtök

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum var einnig ósáttur við ummælin og skrifaði pistil um málið fyrir nokkru.

Taldi hann ummæli Píratans ekki boðleg; sikileyska mafían eru eru viðurstyggileg glæpasamtök en Kaupfélag Skagfirðinga er íslenskt fyrirtæki með höfuðstöðvar á Ártorgi í Skagafirði. Elliði rekur svo það sem gerir að þessu sé ekki saman að líkja: „Kaupfélag Skagfirðinga er samvinnufélag í dreifðri eign og blönduðum rekstri.  Sikileyska mafían stundar morð, mansal, vændi, nauðganir og marga þá  hryllilegustu glæpi sem hægt er að hugsa sér.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×