Enski boltinn

Svefnpokinn hans Wengers til sýnis á Emirates

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Wenger í fullum herklæðum.
Wenger í fullum herklæðum. vísir/getty
Vandræði Arsene Wenger, knattspyrnustjóra Arsenal, með rennilásinn á svefnpokanum svokallaða, skósíðri dúnúlpu sem hann klæðist jafnan á hliðarlínunni, eru fræg að endemum.

Í sumar gefst gestum á Emirates, heimavelli Arsenal, kostur á sjá svefnpokann fræga á skrifstofu Wengers í skoðunarferð um völlinn.

„Stuðningsmenn fá tækifæri til að skyggnast bak við tjöldin og sjá hvað Wenger geymir á skrifstofunni sinni, þ.á.m. úlpuna frægu,“ segir í frétt á heimasíðu Arsenal.

Hér að neðan má sjá myndband af baráttu Wengers við rennilásinn á svefnpokanum svokallaða.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×