Viðskipti innlent

Svartur föstudagur að detta úr tísku

Sæunn Gísladóttir skrifar
Talið er að 3,5 prósent færri Bandaríkjamenn versli í búðum á deginum í ár en í fyrra.
Talið er að 3,5 prósent færri Bandaríkjamenn versli í búðum á deginum í ár en í fyrra. Vísir/AFP
Svo virðist sem „svartur föstudagur“ (e. Black Friday), útsöludagurinn sem haldinn er á föstudaginn í þessari viku, daginn eftir þakkargjörðarhátíðina, sé að missa sess sinn meðal bandarískra neytenda.

Dagurinn hefur sögulega verið stærsti verslunardagur ársins í Bandaríkjunum en fjöldi verslana býður vörur með miklum afslætti á þessum degi og hefja því margir jólaverslunina þá. Business Insider greinir frá því að á síðustu árum virðist færri neytendur leggja leið sína í stórmarkaði á borð við Wal­mart, Target og Amazon á þessum degi. Spáð er að fjöldi þeirra sem heimsækja verslanir á þessu ári muni dragast saman um 3,5 prósent milli ára, og er þetta ofan á hlutfallslega fækkun síðustu ára.

Á síðasta ári fóru 102 milljónir manna í verslanir um þessa helgi og hafði þá fækkað um rúmlega fjörutíu milljónir frá 2012, samkvæmt tölum frá National Retail Federation.

Þróunin virðist vera að fólk versli jafn mikið fyrir jólin, en sé ekki að draga innkaupin fram á svarta föstudag, og að það versli í auknum mæli á netinu. Talið er að samanlagt 137,4 milljónir manna í Bandaríkjunum muni versla í búðum og á netinu um þakkargjörðarhelgina. Það er tveggja milljóna manna fjölgun milli ára.

Spáð er að neytendur muni versla fyrir 3,6 prósent hærri upphæð en í fyrra eða fyrir 655,8 milljarða Bandaríkjadala.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×