Viðskipti innlent

Svarthvítt Ríkisútvarp

Stjórnarmaðurinn skrifar
Ef taka ætti mark á þeim sem hæst hafa í umræðunni um Ríkisútvarpið mætti halda að Ísland væri eina landið í heiminum þar sem styr stendur um starfsemi ríkisfjölmiðla. Þannig hafa margir beitt fyrir sig rökum á þá leið að til dæmis BBC í Bretlandi eða DR í Danmörku séu standandi dæmi um mikilvægi og tilverurétt almannafjölmiðla. Röksemdir sem þessar eru hins vegar mikil einföldun.

Í fyrsta lagi bera þær þess vott að fólk geti einungis verið með eða á móti Ríkisútvarpinu. Annaðhvort verði RÚV lagt niður eða það starfi áfram í nokkurn veginn óbreyttri mynd.

Skoðanir flestra falla væntanlega á milli. Stjórnarmaðurinn telur til dæmis að ríkisfjölmiðlar eigi rétt á sér, þeir eigi hins vegar að forðast samkeppni við einkaaðila. Þannig á Ríkisútvarpið ekki að bjóða þjónustu sem er nú þegar í boði annars staðar, það á ekki að keppa við einkaaðila um efniskaup og ekki að standa í auglýsingasölu. Í þessari skoðun felst vilji til að breyta Ríkis­útvarpinu, ekki leggja það niður.

Í öðru lagi þá vill oft brenna við að þegar gripið er í samanburð við erlenda ríkisfjölmiðla þá séu slíkir fjölmiðlar sveipaðir einhvers konar dýrðarljóma. Vitanlega er það ekki svo. Fyrir hvern þátt af David Attenborough á BBC, er fjöldi útsendinga af hæfileikakeppnum ýmiss konar, sem þó er ekki þverfótað fyrir á einkastöðvunum.

BBC er líka illa rekin stofnun á flesta mælikvarða. Svo mjög að stofnuninni hefur verið gert að skera niður um 140 milljarða króna á næstu sjö árum. Fyrstu skrefin hafa nú verið stigin í þá átt. M.a. stendur til að skera stórlega niður framboð á íþróttaefni enda ofgnótt af slíku í boði hjá einkaaðilunum. Þannig hefur BBC nú þegar gefið eftir réttinn á opna breska meistaramótinu í golfi og til stendur að gera slíkt hið sama varðandi Formúlu 1 kappaksturinn.

Samanburður leiðir líka í ljós mikla sóun. Á BBC eru t.d. 129 fjölmiðlafulltrúar á meðan hjá ITV starfa 35. ITV selur þó eigið efni um allan heim. Launakostnaður hjá félaginu er sömuleiðis gríðarlegur og jókst um 20 milljarða króna í fyrra. Ljóst er að taka þarf til á ýmsum vígstöðvum eigi sparnaðaráform að standast.

BBC er því ekki gallalaust frekar en önnur fyrirtæki. Engum dettur hins vegar í hug að þeir sem berjast fyrir umbótum í rekstri stofnunarinnar séu allir sérstakir óvinir almanna­útvarps.

Stjórnarmaðurinn er sigldur innherji með puttann á púlsinum. Stjórnarmaðurinn skrifar í Markaðinn í Fréttablaðinu á miðvikudögum og liggur ekki á skoðunum sínum um menn og viðskiptaleg málefni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×