Lífið

Svart og sykurlaust í ræktinni

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Stíll Rick Owens er í anda health goth.
Stíll Rick Owens er í anda health goth. Vísir/Getty
Nýjasta æðið í dag er Health Goth eða heilsu goth. Flestir kannast við goth lífsstíllinn sem kom í kjölfar pönksins og einkenndist af drunga og dauða. Því munu sennilega flestir spyrja sig hvernig í ósköpunum þetta tvennt fer saman; að vera goth og heilsufrík. Heilsu goth byggir vissulega á sömu hugmyndum, en er snúið upp í það að æfa öfga mikið og helst þangað til þú heldur að þú sért við það að deyja.

Heilsu goth varð fyrst vinsælt vorið 2013 þegar Facebooksíðan Health Goth var stofnuð. Undanfarið hefur kassamerkingin #healthgoth náð vinsældum á Twitter þar sem vitnað er í tíu boðorð þeirra. Þar er lögð áhersla á að æfa almennilega og gerð uppreisn gegn stereótýpum í líkamsrækt, sólbrúnum kroppum sem mæta bara til þess að skoða sig í speglinum eða æfa einungis efri búk.

Á síðunni deadworldwide útskýrir Caitlin Mary Cunningham, eigandi hennar, hugtakið „health goth“ svona: „Hugsaðu um satanísku Biblíuna. Þar er talað um að þú sért þinnar eigin gæfu smiður og með því að vera þinn eigin Guð þá ertu að taka stjórn á þínu lífi. Það er heilsu goth. Lyfta þungu, nota ketilbjöllur og taka hnébeygjur. Þú færð aðeins einn líkama og eitt tækifæri til þess að lífa. Að lifa heilsusamlegu lífi, vera í formi og samkvæmur sjálfum sér, það er heilsu goth,“ segir Cunningham.

Það verður seint sagt um þennan lífsstíl að hann sé litríkur. Svart og ekkert nema svart ræður ríkjum, með einstaka hvítu og gráu. Sportlegur klæðnaður sem virkar bæði í ræktinni og úti á lífinu. Víð æfingaföt, einföld snið, netabolir, glansandi efni, þykkbotna íþróttaskór og framtíðarleg, stundum vélræn hönnun.

Hönnuðir eins og Rick Owens og Alexander Wang eru skólabókardæmi um health goth stíl, ásamt klassískum fötum frá Nike og Adidas. Merkið Hood by Air, sem hefur verið vinsælt hjá tónlistarmönnum eins og Kendrick Lamar og Kanye West. Þrátt fyrir að þessir tískuhönnuðir geri fatnað í anda health goth, er þeim meinilla við að kalla þetta tískubylgju og vilja heldur kalla þetta lífsstíl.



10 Boðorð heilsu gotharans
#healthgoth

1. 80% af árangrinum næst í eldhúsinu

2. Þú getur ekki einangrað brennslu á einn líkamshluta

3. Æfðu allan líkamann jafnt

4. Ekki sleppa fótadegi

5. Ekki vera hrædd(ur) við a lyfta

6. Ef þú getur ekki lyft þungu, léttu það þá

7. Kláraðu æfinguna/settið

8. Ekki skoða þig í speglinum

9. Æfðu þangað til þér líður eins og þú sért að deyja

10. Næring fyrir og eftir æfingu skiptir máli






Fleiri fréttir

Sjá meira


×