Innlent

Svarar Gylfa og Ingibjörgu: „Meirihluti stjórnar félagsins stendur á bakvið yfirlýsinguna“

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, vill ítreka að mikill meirihluti stjórnarmanna í VR styðja yfirlýsingu um vantraust á forseta ASÍ.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, vill ítreka að mikill meirihluti stjórnarmanna í VR styðja yfirlýsingu um vantraust á forseta ASÍ.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, gaf frá sér yfirlýsingu í kvöld þar sem hann svarar þeim Gylfa Arnbjörnssyni, forseta ASÍ og Ingibjörgu Ósk Birgisdóttur, stjórnarmanni í VR.

Málið snýst um yfirlýsingu sem stjórn VR birti í gær þess efnis að Gylfi njóti hvorki trausts til að leiða viðræður við stjórnvöld né Samtök atvinnulífsins fyrir hönd VR. Gylfi muni ekki tala í umboði þeirra.

Ingibjörg er annar af tveimur stjórnarmönnum VR sem greiddu atkvæði gegn vantrausti á forseta ASÍ. Alls greiddu 11 stjórnarmenn VR afstöðu með tillögunni, tveir tóku ekki afstöðu til hennar og aðrir tveir lögðust gegn henni. Ingibjörg sagði í viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2 að henni þætti Ragnar hafa sýnt af sér kunnáttu-og þekkingarleysi á málaflokknum og ennfremur að það hafi orðið mikil breyting á stjórninni síðan Ragnar tók við formennsku.

Ingibjörg Ósk Birgisdóttir, stjórnarmaður í VR og 2. varaforseti ASÍ en hún hefur setið í stjórn VR í átta ár.Víisir
Í yfirlýsingu frá formanni VR vill Ragnar auk meirihluta stjórnarinnar árétta að engin ólga sé innbyrðis stjórnar VR vegna málsins þó óánægju kunni að gæta hjá tveimur stjórnarmönnum sem lögðust gegn vantraustsyfirlýsingunni.

Ragnar segir að það sé ekki óeðlilegt að tekist sé á um mál innan verkalýðshreyfingarinnar og að ekki séu allir sammála um allt í fimmtán manna stjórn. „Stjórnarsamstarfið hefur gengið vel hingað til og ekki er óeðlilegt að teknar séu ákvarðanir með þeim hætti sem gert var, utan formlegs stjórnarfundar, enda fjölmörg dæmi um slíkt í stórum sem smáum málum innan stjórnar VR gegnum tíðina.“


Tengdar fréttir

Stjórn VR treystir ekki forseta ASÍ

Stjórn VR ber ekki traust til Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ, til að leiða viðræður við stjórnvöld eða Samtök atvinnulífsins fyrir hönd stéttarfélagsins og mun hann ekki tala í umboði þess.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×