Innlent

Svara Framsókn fullum hálsi

Snærós Sindradóttir skrifar
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir gagnrýndi vinnubrögð við skýrsluna í borgarráði.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir gagnrýndi vinnubrögð við skýrsluna í borgarráði. Fréttablaðið/Arnþór
Fulltrúar allra flokka í Mannréttindaráði Reykjavíkurborgar, utan Framsóknar, lögðu fram bókun á fundi ráðsins á þriðjudag og sögðu málatilbúnað Framsóknar rangan og ósannan.

Framsókn lagði fram bókun gegn skýrslu um hatursorðræðu á netmiðlum í borgarráði á fimmtudag. Í bókun mannréttindaráðs kemur fram að meirihlutinn telji ekki ástæðu til að gagnrýna vinnubrögð við skýrsluna eins og Framsókn gerir.

Segir að skýrslan gefi góða mynd af orðræðunni sem á sér stað við fréttir á netmiðlum. Gagnrýni Framsóknar sé ekki á rökum reist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×