Enski boltinn

Svanirnir unnu án Gylfa

Leikmenn Swansea fagna.
Leikmenn Swansea fagna. vísir/getty
Swansea vann góðan útisigur í sjávarplássinu Hull í dag, en Svanirnir léku án Gylfa Sigurðssonar. Gylfi glímir við smávægileg meiðsli á fæti.

Sung-Yeung Ki skoraði eina mark leiksins eftir stundarfjórðung, en þeir fengu fleiri færi til að bæta við mörkum en inn fór boltinn ekki.

Með sigrinum fer Swansea í áttunda sæti deildarinnar með 25 stig, en Hull er í bullandi vandræðum í nítjánda sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×