Erlent

Svangt sæljón fannst á veitingastað

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Sæljónið var sársvangt.
Sæljónið var sársvangt.
Sársvangt sæljón fannst inni á veitingastað í San Diego í Bandaríkjunum í dag. Kópurinn, sem er átta mánaða, er talinn hafa komist inn um bakdyr veitingastaðarins og fannst sofandi á bás þar.

Í ljós kom að hann var alvarlega vannærður og uppþornaður og var hann færður í björgunarmiðstöð dýragarðsins Sea World þar sem hann fékk að gæða sér á veglegri máltíð.

Myndband af kópnum má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×