Svandís sökuð um hryðjuverkaárás 30. september 2009 19:04
Galin og óskiljanleg ákvörðun. Hryðjuverkaárás. Skemmdarverk. Þessi orð nota þingmenn Sjálfstæðisflokks um ákvörðun umhverfisráðherra um Suðurnesjalínu sem gæti tafið Helguvíkurframkvæmdir um allt að tvö ár. Samtök atvinnulífsins hvetja til þess að ákvörðun ráðherrans verði hunsuð enda sé hún lögbrot.Þingmenn Suðurkjördæmis funduðu í hádeginu, að frumkvæði oddvita kjördæmisins, Samfylkingarþingmannsins Björgvins G. Sigurðssonar, til að meta afleiðingar ákvörðunar Svandísar Svavarsdóttur í gær. Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins, segir þetta geta þýtt eins til tveggja ára töf í versta falli, í besta falli tveggja til þriggja mánaða töf.Þingmenn Samfylkingarinnar lýsa vonbrigðum með ákvörðun Svandísar en segjast treysta því að töfin verði ekki lengri en tveir mánuðir. Björgvin segir að ef framkvæmdin yrði send í sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum þýddi það mikið lengri frestun og það styðji hann að sjálfsögðu ekki enda megi ekki breyta leikreglum eftirá.Sjálfstæðisþingmaðurinn Ragnheiður Elín Árnadóttir segir að ekki bara álver, heldur einnig gagnaver, kísilver og raforkuöryggi heimila á Suðurnesjum, séu sett í uppnám. Að hennar mati sé þetta óskiljanleg og fullkomlega galin ákvörðun.Árni Johnsen tók enn sterkar til orða og sagði þetta skemmdarverk og meira en það: Þetta væri hryðjuverkaárás á stöðuna í landinu í þegar 1.600 manns væru atvinnulausir á Suðurnesjum.Framsóknarþingmaðurinn Sigurður Ingi Jóhannsson ítrekar fyrri orð um atlögu umhverfisráðherra gegn atvinnulífinu. Skilaboðin til erlendra fjárfesta væru einnig afar slæm; að hér væru ekki stjórnvöld sem hægt væri að treysta.Samtök atvinnulífsins lýstu því yfir í dag, að með því að taka sér þremur mánuðum lengri tíma til að úrskurða en lög gerðu ráð fyrir, hefði umhverfisráðherra brotið lög. Samtökin telja úrskurð ráðherrans því marklausan og segja sjálfsagt að framkvæmdaaðilar haldi sínu striki.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira