Glamour

Svalasta amma heims

Ritstjórn skrifar
Hin 87 ára gamla Helen Van Winkle var ósköp venjuleg gömul kona. Hún klæddist blómakjólum og gekk með smellueyrnalokka.

Eftir að eiginmaður hennar og sonur létust báðir var hún eðlilega niðurbrotin. En til þess að gera sér lífið bærilegra ákvað hún einn daginn að fríska upp á klæðaburðinn og fór í „tie-dyed“ bol og gallastuttbuxur.

Fannst barnabarninu hennar, Kennedy, amma sín svo svöl að hún tók mynd af henni og póstaði inn á Instagram. Viðbrögðin létu ekki standa á sér, amman varð feykivinsæl og til varð hennar annað sjálf, Baddie Winkle.

 
bad gals flick it well

A video posted by @baddiewinkle on Jun 7, 2015 at 4:05pm PDT

í dag er Baddie einn svalasti ellilífeyrisþegi heims. Hún klæðist litríkum göllum, beanie húfum og peysu með poppprinsinum Justin Bieber. Hún er með 1,3 milljónir fylgjenda á Instagram og er góð vinkona Nicole Richie og Miley Cyrus og bauð sú síðarnefnda vinkonu sinni að koma á VMA verðlaunahátíðina um helgina.

Hún kann svo sannarlega að lifa lífinu til fulls þessi og sýnir að aldur er sko afstæður.





Með Nicole Richie
Sennilega besta selfie allra tíma.
Með Miley Cyrus á VMA
Skvís í Justin Bieber peysunni
Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.






×