Körfubolti

Svalahornið: Bonneau er það haltur að ég lít út fyrir að vera með heilbrigt göngulag

Stefán Árni Pálsson skrifar
Nýr liður í Dominos-körfuboltakvöldi á Stöð 2 Sport er Svalahornið með Svala Björgvinssyni.

Þar fer sérfræðingurinn yfir aðalleik kvöldsins í Dominos-deildinni og leggur sitt mat á ákveðna hluti körfuboltans. Hann ræddi meðal annars um Njarðvíkinginn Stefan Bonneau sem gerði 28 stig gegn Stjörnunni í gærkvöldi.

Stjarnan vann leikinn í gær 94-83 en Bonneau fór mikinn í leiknum. Hann hefur slitið hásinina í tvígang á stuttum tíma. Svali fór svo langt í gær að hann sýndu áhorfendum göngulag sitt til að lýsa í hvernig standi Bonneau er í.

Hér að ofan má sjá Svalahornið frá því gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×