Lífið

Svala í Carpool Karaoke með Selmu Björns og Jóhönnu Guðrúnu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hrikalega skemmtilegur rúntur.
Hrikalega skemmtilegur rúntur.
Svala Björgvinsdóttir tekur þátt í Söngvakeppninni í Laugardagskvöldið með laginu Paper en hún er um þessar mundir á fullu í kynningarstarfi til að koma sér alla leið til Kænugarðs í lokakeppni Eurovision í maí. 

Svala fer heldur betur frumlega leið hér á landi. Hún skellti sér í hið vinsæla Carpool Karaoke með Selmu Björns og Jóhönnu Guðrúnu. 

Saman tóku þær lögin Paper, All out of luck og Is it true sem eiga það sameiginlegt að vera Eurovision-lög. 

Útkoman, hreint út sagt stórkostleg. Það þurfti engan James Corden til að stjórna þessu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×