Innlent

Svæðið frá Grindavík að Óseyrarbrú undir smásjá

Birgir Olgeirsson skrifar
Ríkjandi alda úr suðvestri á þeim tíma sem Birnu Brjánsdóttur var saknað.
Ríkjandi alda úr suðvestri á þeim tíma sem Birnu Brjánsdóttur var saknað. Vísir/Loftmyndir ehf.
Vegagerðin hefur látið lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í té upplýsingar um öldufar á þeim tíma sem Birna Brjánsdóttir hvarf í miðborg Reykjavíkur aðfaranótt laugardagsins 14. janúar síðastliðins og til sunnudagsins 22. janúar þegar lík hennar fannst við Selvogsvita.

Á þeim tíma var ríkjandi suðvestan átt í öldu, sem þýðir að hún fer frá vestri til austurs. „Það komu að vísu dagar þegar vindáttin var breytileg en ölduáttin var afgerandi suðvestanátt allan tímann,“ segir Sigurður Sigurðsson, strandverkfræðingur hjá Vegagerðinni.

Við ströndina ræðurölduáttin mjög miklu en þegar komið er lengra út frá ströndinni skipta sjávarfallsstraumar máli.Vísir/Vilhelm
Margar breytur til skoðunar

Hann segir að við ströndina ráði ölduáttin mjög miklu en þegar komið er lengra út frá ströndinni skipta sjávarfallsstraumar máli.

„Þá eru til reklíkön sem geta nýst við að skoða mögulegt rek sem er fyrir áhrif sjávarfalla,“ segir Sigurður en fyrir sunnan Reykjanesið er straumurinn til skiptis til vesturs og austurs. Heildarstefnan er þó lengra til vesturs en styttra til austurs en þannig skiptir straumurinn um átt fram og til baka.

„Síðan er alda þarna ofan á þessu og hún er úr suðvestri á móti sjávarfallsstraumum,“ segir Sigurður.

Án þess að eitthvað sé hægt að fullyrða um það á þessari stundu þá telur Sigurður að miðað við þau gögn sem Vegagerðin gat horft til þá er ekki talið að Birna hafi borist mjög langa leið að Selvogsvita.

Sunnanvert Reykjanesið líklegt

Skópar Birnu fannst við Hafnarfjarðarhöfn mánudagskvöldið 16. janúar en talið er nánast útilokað að líkið hafi borist frá Hafnarfjarðarhöfn.

Sigurður segir sunnanvert Reykjanesið líklegt, þó svo aftur sé ekkert hægt að fullyrða um það. Sigurður segist engar forsendur hafa til að útiloka svæðið frá Óseyrarbrú, að Krýsuvíkurbergi eða til Grindavíkur.

Huga þarf að mörgum breytum við þessa rannsókn en ef um Óseyrarbrú er til dæmis að ræða þá hefði líkið ekki ferðast með ströndinni heldur borist úr á svolítið dýpi þar sem sjávarafallastraumarnir hefðu geta borið það hægt til vesturs en síðan á einhverjum tímapunkti hefur aldan gripið það og fært upp í fjöru.

Gruna laugardaginn

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókninni á málinu, segir það blasa við að Birna hafi farið í sjó en hvenær nákvæmlega er erfitt að segja um. „Ekki annað en að okkur grunar að það hafi gerst á laugardeginum 14. janúar,“ segir Grímur.

Hann segir lögreglu hafa uppi kenningar um hvar Birna var sett í sjó en vill ekki fara nánar út í það. Hann segir lögreglu njóta aðstoðar sérfræðinga í bæði straumum og ölduhreyfingum við rannsókn málsins.


Tengdar fréttir

Hinn skipverjinn yfirheyrður í dag

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var Thomas Möller yfirheyrður í gær og verður þá Nikolaj Olsen yfirheyrður í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×