Lífið

Susan Sarandon viðurkennir að hafa átt í ástarsambandi við David Bowie

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Hér sjást þau David Bowie og Susan Sarandon en á milli þeirra stendur fyrrum eiginmaður Sarandon, Tim Robbins. Myndin er tekin árið 2003, tuttugu árum eftir ástarsambandið leynda.
Hér sjást þau David Bowie og Susan Sarandon en á milli þeirra stendur fyrrum eiginmaður Sarandon, Tim Robbins. Myndin er tekin árið 2003, tuttugu árum eftir ástarsambandið leynda. Mynd/GettyImages
Susan Sarandon hefur viðurkennt að hafa átt í ástarsambandi við tónlistarmanninn þekkta David Bowie. Þau léku saman í kvikmyndinni The Hunger, eða Hungrið, árið 1983 og var ástarsambandið „mjög áhugavert“ að sögn Susan. Þetta kemur fram í viðtali hennar við The Daily Beast.

„Hann er þess virði að vera lofsunginn. Hann er ótrúlegur. Þetta var mjög áhugaverður tími,“ segir Sarandon sem er nú 67 ára gömul. Ástarsamband hennar við Bowie hófst eftir að hún skildi við fyrsta eiginmann sinn, Chris Sarandon, og áður en hún hóf að hitta Tim Robbins, sem hún hætti með árið 2009 eftir 23 ár saman. Þrátt fyrir ástarævintýrið með Bowie og eitt með öðrum leikara sem hún vill ekki gefa upp nafnið á hefur hún mest alla ævi verið í löngum samböndum. „Ég vil hreiðra um mig og hallast frekar að því að vera með einum manni,“ sagði Sarandon.

Þrátt fyrir að það séu mörg ár síðan leiðir þeirra skildu hefur Sarandon ekkert nema gott að segja um rokkarann breska. „Bowie er svo einstaklega áhugaverð manneskja, og svo bjartur. Hann er hæfileikaríkur og hann er málari og .. hann er frábær.“

Susan Sarandon er um þessar mundir að bíða eftir frumsýningu myndar sinnar The Last of Robin Hood sem kemur út í lok ágúst. Með henni í myndinni leika Kevin Kline og Dakota Fanning. 

Þessi mynd náðist árið 1983 þann 1. júlí af þeim Bowie og Sarandon sem um þær mundir áttu í ástarsambandi.Photo by The LIFE Picture Collection/Getty Images
.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×