Surtsey er sjálfstætt ríki 21. desember 2006 17:00 Björk býr í íshöll með fjölda vélmenna, að sögn Óalfræðibókarinnar.
Margir þekkja Wikipedia, alfræðiorðabókina á netinu sem allir geta breytt og bætt upplýsingum í. Færri þekkja þó Uncyclopedia, Óalfræðibókina, sem allir geta breytt og bætt bulli í. Uncyclopedia, eða „Óalfræðibókin", lítur nákvæmlega eins út og Wikipedia við fyrstu sýn, en við nánari skoðun sést að allt sem í henni stendur er algjör vitleysa. Á síðunni má lesa að Jesús Kristur hafi verið 56. forseti Bandaríkjanna, Grænland sé hitabeltiseyja og að strandvörðurinn David Hasselhoff sé einn virtasti vísindamaður heims. Hann hafi einnig verið helsta orsök falls Berlínarmúrsins og sameiningar Austur- og Vestur-Þýskalands. Öllum greinunum fylgja svo tilvitnanir í rithöfundinn Oscar Wilde, sem hefur margt misgáfulegt um flest að segja, og marga aðra, þar á meðal leikarana Mr. T og Samuel L. Jackson og George Bush Bandaríkjaforseta. Ísland fær að sjálfsögðu umfjöllun eins og í öllum góðum fræðiritum. Samkvæmt Óalfræðibókinni tala Íslendingar „björksku", enda ræður söngkonan ástsæla, Björk Guðmundsdóttir, ríkjum á landinu. Svarthöfði er hins vegar konungur landsins og hefur verið það síðan 1906. Danir viðurkenna ekki sjálfstæði landsins og kindur eru helsti gjaldmiðillinn. Bobby Fischer er helsta innflutningsvara Íslands samkvæmt síðunni og Baugur Group það helsta sem Íslendingar flytja út. Þjóðsöngur landsins var „Er nokkuð rangt við dýrakynlíf?" þar til honum var skipt út fyrir „Við treystum á þorskinn". Surtsey er hins vegar sjálfstætt kommúnistaríki, sem hefur slitið tengslum við Ísland. Á annarri eyju nálægt Íslandi er Nýja-Bjarkarborg. Hún skiptist í tvennt, annars vegar íshöll Bjarkar og hins vegar hverfi fátækra þræla, sem búa í 30 manna hópum í moldarkofum. Þrælarnir eru alls um 15 þúsund talsins, en í íshöll Bjarkar býr enginn nema hún og fjöldi þjónustuvélmenna. Meira rugl má lesa á síðunni sjálfri, www.uncyclopedia.org, og getur hún verið ágætis tímaþjófur í skammdeginu.steindor@frettabladid.is Bobby Fischer skákmeistarinn er helsta innflutningsvara Íslands. .
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið Fleiri fréttir Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Sjá meira