Viðskipti erlent

Super Bowl auglýsingarnar 2017: Fljúgandi draugahundur, Melissa McCarthy og Justin Bieber

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Auglýsingarnar í ár eru hreint út sagt stórkostlegar.
Auglýsingarnar í ár eru hreint út sagt stórkostlegar. Vísir/Skjáskot
Stærsti íþróttaviðburður ársins er í kvöld, þegar New England Patriots og Atlanta Falcons mætast í leiknum um Ofurskálina eða Super Bowl. 

Íþróttaviðburðurinn er svo stór í sniðum og fær svo mikið áhorf, að auglýsendur keppast um auglýsingaplássið á meðan leiknum stendur.

Hefð hefur því skapast fyrir því að auglýsendur keppa sín á milli, um það hver getur framleitt eftirminnilegustu auglýsinguna sem sýnd er á þessum tíma.

Í ár er engin undantekning, en hér að neðan er hægt að sjá eftirminnilegustu auglýsingarnar sem sýndar verða í kvöld, þar sem ber meðal annars að líta fljúgandi draugahund og Jasom Statham, Melissa McCarthy og svo miklu miklu fleiri stjörnur. 

Honda

Honda nýtti sér næstum því allar Hollywood stjörnurnar í þessari auglýsingu, til að hvetja okkur áfram, af árbókarmyndum sínum.

Audi

Hugulsamur faðir veltir vöngum yfir því hvernig hann eigi að útskýra ójafna stöðu kynjanna fyrir ungri dóttur sinni, í þessari auglýsingu frá Audi.

Bud Light

Draugur Spuds Mackenzie, sem áður fyrr var aðal lukkudýr Bud Light bjórframleiðandans og ítrekað notaður í auglýsingar þeirra, leikur aðalhlutverkið í þessari auglýsingu, sem minnir svolítið á jólasögu.

Kia

Melissa McCarthy leikur lánlausan umhverfisverndarsinna, í þessari drepfyndnu auglýsingu frá bílaframleiðandanum KIA.

T-Mobile

Poppstjarnan Justin Bieber, mætir til leiks í þessari auglýsingu og útskýrir þróun snertimarka-danssporanna, sem leikmenn grípa í til að fagna snertimörkum í ruðningi.

Fleiri stórskemmtilegar auglýsingar má sjá hér að neðan, þar sem Jason Statham og Tom Brady láta meðal annars sjá sig.  Sjón er svo sannarlega sögu ríkari.


Tengdar fréttir

Fjórfalt meiri tekjur vegna Super Bowl

NFL-deildin stendur á sunnudag fyrir "árshátíð auglýsenda“ eða Super Bowl 51. Fræðslustjóri VÍB segir auglýsingatekjur bandarískra fjölmiðla vegna úrslitaleiksins nema 44 milljörðum króna og slátra þarf 650 milljónum hænsna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×