Matur

Sunnudags páskalamb og gómsæt pavlova

Eva Laufey skrifar

Sunnudagspáskalamb

1 lambalæri, rúmlega 3 kg

Salt og nýmalaður pipar

Lambakjötskrydd 1 msk., t.d. Bezt á lambið

Ólífuolía

3 stórir laukar, grófsaxaðir

1 heill hvítlaukur, skorinn í tvennt, þversum

2 fenníkur (fennel), skornar í fernt

3 sellerístilkar, grófsneiddir

5 gulrætur

1 rauð paprika

700 ml grænmetissoð

3 greinar timían

2 greinar rósmarín

Handfylli fersk steinselja

Smjör



Aðferð



1.Hitið ofninn í 120°C.

2. Finnið til stóran steikarpott eða stórt eldfast mót.

3. Leggið lærið í steikarpottinn eða mótið, veltið upp úr ólífuolíu og saltið og piprið. Það er gott að nota lambakjötskrydd en það er smekksatriði.

4. Bætið grænmetinu í steikarpottinn/eldfasta mótið.

5. Hellið soði í pottinn. Lokið pottinum eða leggið álpappír þétt yfir mótið.

6. Bakið lærið í miðjum ofni í sjö klukkustundir.

7. Þegar 30 mínútur eru eftir af eldunartímanum er lokið eða álpappírinn tekinn af, fínsöxuðum kryddjurtum og smjöri er bætt út í pottinn og hitinn í ofninum hækkaður í 200°C. Þá verður puran dökk og stökk.

8. Það er mikilvægt að leyfa kjötinu að hvíla í lágmark 20 mínútur áður en þið berið það fram.



Ljúffengt kartöflugratín

8 dl rjómi

1 laukur, skorinn í strimla

1 kjúklingateningur

1 msk. blandað krydd, t.d. Bezt á allt

Salt og pipar

Rifinn ostur



Aðferð



1. Kartöflurnar skolaðar vel og skornar í sneiðar, um 1 cm.

2. Laukur skorinn niður og steiktur upp úr smjöri í smá stund. Kartöflum, rjóma, kjúklingateningi og kryddi er blandað saman í pottinum.

3. Sjóðið við vægan hita í 10-15 mínútur, eða þar til kartöflurnar eru orðnar vel mjúkar.

4. Hellið þá kartöflublöndunni í eldfast mót, dreifið rifnum osti yfir og hitið í ofni við 200°C í um 20 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður og orðinn gullinbrúnn.



Sveppasósa með piparosti

Smjör

250 g sveppir, skornir í sneiðar

1–2 tsk. lambakjötskrydd, t.d. Bezt á lambið

½ l rjómi

½-1 piparostur, skorinn í smáa bita

½ kjúklingateningur



Aðferð



1. Bræðið smjör í potti. Látið sveppina malla við vægan hita í smjörinu í nokkrar mínútur. Kryddið til með lambakjötskryddi.

2. Hellið rjóma yfir og bætið piparosti saman við. Látið sjóða saman við vægan hita um stund. Hrærið í á meðan og passið að osturinn brenni ekki við.

3. Bætið teningi í pottinn og leyfið sósunni að malla í nokkrar mínútur.

Vísir/Eva Laufey

Súkkulaði-Pavlova

„Pavlova er ástralskur marensábætir, kenndur við rússnesku ballerínuna Önnu Pavlovu.“

6 stórar eggjahvítur

3 dl sykur

3 msk. kakó

1 tsk. hvítvínsedik

Aðferð

Hitið ofninn í 175°C.

1. Þeytið eggjahvíturnar þar til þær byrja að mynda froðu og bætið þá sykrinum smátt og smátt saman við. 

2. Þeytið áfram þar til blandan er orðin stífþeytt. Það á að vera hægt að halda skálinni á hvolfi án þess að marensdeigið renni úr henni.

3. Sigtið kakó og bætið ediki saman við og blandið öllu vel saman. 

4. Hellið marensblöndunni á pappírsklædda ofnplötu. 

5.Bakið við 150°C í 90 mínútur. Botnarnir eiga að vera harðir og stökkir við kantana en seigir í miðjunni.

Slökkvið á ofninum en látið botnana vera áfram á eftirhitanum í honum, best er að geyma botnana í ofninum yfir nótt en þeir þurfa að minnsta kosti að ná stofuhita áður en rjómablandan fer ofan á og kakan skreytt með ferskum berjum. 

Ofan á 

500 ml rjómi 

1 msk. sykur 

500 g blönduð ber 

3 msk. saxað súkkulaði 

Aðferð

1. Léttþeytið rjóma og sykur. 

2. Dreifið rjómablöndunni yfir marensbotninn og skreytið með ferskum berjum. 

3. Sáldrið grófsöxuðu súkkulaði yfir kökuna í lokin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×