Viðskipti innlent

Sunna Valgerðardóttir til Orkuveitu Reykjavíkur

Sunna Valgerðardóttir hefur starfað hjá Ríkisútvarpinu að undanförnu.
Sunna Valgerðardóttir hefur starfað hjá Ríkisútvarpinu að undanförnu.
Sunna Valgerðardóttir hefur verið ráðin sérfræðingur hjá samskiptamálum Orkuveitu Reykjavíkur.

Sunna er með BA-próf í fjölmiðla- og nútímafræði frá Háskólanum á Akureyri og diplóma í margmiðlunarhönnun frá Odense Tekniske Skole. Hún starfaði á ritstjórn Fréttablaðsins frá 2009 til 2013. Þá hóf hún störf á fréttastofu RÚV, þar sem hún hefur starfað síðan. Sunna hlaut Íslensku blaðamannaverðlaunin fyrir umfjöllun ársins 2012.

Í tilkynningu frá Orkuveitunni kemur fram að starfið var auglýst í marsmánuði síðastliðnum og var Sunna ráðin úr hópi um 50 umsækjenda. Á meðal verkefna Sunnu verður að taka þátt í hönnun upplýsingaefnis og að þróa notkun hinna ýmsu nýju samskiptamiðla hjá OR ásamt því að vera talsmaður fyrirtækja innan samstæðu Orkuveitunnar. Sunna mun hefja störf um miðjan mánuðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×