Sport

Sunna: Trúi því að pabbi og systir mín berjist með mér

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sunna Rannveig Davíðsdóttir barðist sinn annan atvinnumannabardaga í Kansas City um síðustu helgi. Hún hafði þá betur gegn hinni bandarísku Mallory Martin í hörkubardaga hjá Invicta-bardagasambandinu.

Bardagi Sunnu og Martin var rosalegur og kom það fáum á óvart að bardagi þeirra hafi verið valinn bardagi kvöldsins. Sunna vann fyrstu lotuna en Martin kom sterk til baka í annarri lotu og náði þá að vanka Sunnu og héldu margir að okkar kona væri þá búin að vera.

Hún fann samt einhvern ótrúlegan kraft fyrir lokalotuna sem hún vann en hvar fann hún þetta aukabensín á tankinn?

„Ég hugsa til dóttur minnar sem er að horfa og þeirra sem styðja við bakið á mér. Ég hef gengið í gegnum ýmislegt um tíðina. Ætli það séu ekki þær stundir sem maður hugsar um. Þegar maður hefur þurft að standa upp aftur,“ segir Sunna alvarleg og einlæg.

„Ég hef misst pabba minn og systur mína. Ég hugsa til þeirra og sæki kraft til þeirra. Ég hugsa að þau séu að berjast með mér. Ég trúi því að þau séu hjá mér. Þegar á móti blæs þá koma þau sterk inn og berjast fyrir mig ef eitthvað er.“

Sunna sendir hjarta heim eftir bardagann.mynd/mjölnir/sóllilja baltasarsdóttir
Sunna á sér stóra drauma og hefur sett stefnuna á að komast að hjá stærsta bardagasambandi heims, UFC.

„Ég hugsa að dyrnar séu að opnast ef þær eru ekki opnar nú þegar. Ég nýt þess samt í tætlur að berjast þar sem ég er núna. Þangað stefndi ég lengi og er að njóta hvers augnabliks.“

Jón Viðar Arnþórsson, þjálfari Sunnu og formaður Mjölnis, hefur gríðarlega trú á sinni konu og telur að hún muni fara langt.

„Ef hún vinnur næstu einn til þrjá bardaga hjá Invicta að þá mun UFC banka á dyrnar. Hún er strax orðin mjög vinsæl hjá Invicta. Það vildu allir taka myndir af henni eftir bardagann. Hún fer fljótt í UFC ef vel gengur þarna,“ segir Jón Viðar og bætir við að hann sé þegar búin að ræða við fólk frá UFC um Sunnu enda þekkir hann vel til þar eftir að hafa verið í horni Gunnars Nelson frá upphafi.

Sjá má fréttina hér að ofan.

MMA

Tengdar fréttir

Myndasyrpa: Undirbúningur Sunnu gengur vel

Sunna Rannveig Davíðsdóttir stígur aftur inn í búrið í Invicta FC í kvöld þegar hún mætir Mallory Martin en báðar unnu sinn fyrsta atvinnumannabardaga.

Sunna Rannveig með sigur í hörðum bardaga

Mjölniskonan Sunna Rannveig Davíðsdóttir vann í nótt sinn annan atvinnubardaga á ferlinum. Sunna bar sigur úr býtum gegn Mallory Martin í afar jöfnum bardaga.

Mamma hætti að horfa í annarri lotu

Sunna Rannveig Davíðsdóttir barðist sinn annan atvinnumannabardaga um helgina. Hún hafði sigur eftir þrjár rosalegar lotur gegn hinni bandarísku Mallory Martin. Móðir Sunnu hafði ekki taugar í að horfa á bardagann.

Sjáðu það helsta úr bardaga Sunnu

Sunna "Tsunami“ Davíðsdóttir vann sinn annan atvinnumannabardaga í gær er hún hafði betur gegn Mallory Martin í frábærum bardaga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×