Sport

Sundlandsliðið sem keppir á Smáþjóðaleikunum valið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hrafnhildur og Eygló Ósk eru að sjálfsögðu í landsliðshópnum.
Hrafnhildur og Eygló Ósk eru að sjálfsögðu í landsliðshópnum. vísir/anton
Landsliðsnefnd hefur lokið vali á því sundfólki sem mun keppa fyrir Íslands hönd á Smáþjóðaleikunum í San Marínó 29. maí til 3. júní.

Íslendingar hafa alla tíð verið mjög sigursælir í sundhluta leikanna og meira en helmingur allra verðlauna Íslands á Smáþjóðaleikum frá upphafi koma úr sundi. 

Liðið sem keppir í San Marínó er skipað 16 sundköppum; átta konum og átta körlum.

Anton Sveinn McKee gaf ekki kost á sér af persónulegum ástæðum.

Íslenska sundfólkið sem keppir á Smáþjóðaleikunum 2017:

Aron Örn Stefánsson, SH

Ágúst Júlíusson, SA

Bryndís Bolladóttir, Breiðablik

Bryndís Rún Hansen, Óðinn

Davíð Hildiberg Aðalsteinsson, ÍRB

Eygló Ósk Gústafsdóttir, Ægi

Hafþór Jón Sigurðsson, SH

Hrafnhildur Lúthersdóttir, SH

Inga Elín Cryer, Ægi

Íris Ósk Hilmarsdóttir, ÍRB

Karen Mist Arngeirsdóttir, ÍRB

Kristinn Þórarinsson, Fjölnir

Kristófer Sigurðsson, ÍRB

Sunneva Dögg Friðriksdóttir, ÍRB

Viktor Máni Vilbergsson, SH

Þröstur Bjarnason, ÍRB




Fleiri fréttir

Sjá meira


×