Lífið

Sumir taka betri "selfie" en aðrir

Ellý Ármanns skrifar
mynd/facebook
Meðfylgjandi ljósmynd eða öllu heldur selfie" var tekin í Vestmannaeyjum í gær þegar þingflokkur Sjálfstæðisflokksins kom saman.  Á myndinni má sjá Harald Benediktsson, Birgi Ármannsson, Geir Jón Þórisson, Guðlaug Þór Þórðarson, Unni Brá Konráðssdóttur, Vilhjálm Árnason og Ragnheiði Elínu Árnadóttur sem tók myndina.

Hópurinn fór síðan í Álsey þar sem þingmenn snæddu en það voru félagar úr veiðifélagi Álseyinga sem tóku vel á móti hópnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×