Lífið

Sumarveisla FM Belfast

Baldvin Þormóðsson skrifar
ferskt fólk
Hljómsveitarmeðlimir FM Belfast eru alltaf hressir.
ferskt fólk Hljómsveitarmeðlimir FM Belfast eru alltaf hressir.
Í tilefni hækkandi sólar og útgáfu plötunnar Brighter Days, þriðju breiðskífu hljómsveitarinnar FM Belfast, hefur hljómsveitin ákveðið að blása til sumargleði í Mengi í dag frá klukkan fjögur til sex.

Sannkölluð sumarstemning verður í gangi en hópurinn SISTKINI sér um skemmtiatriði ásamt því að FM Belfast verða með þeytir skífum þar sem spiluð verða lög af nýju plötunni í bland við aðra slagara.

Í lok sumarhátíðarinnar verður frumsýnt glænýtt tónlistarmyndband við Brighter Days, titillag plötunnar en Magnús Leifsson leikstýrði myndbandinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×