Lífið

Sumarstemning á Coachella

Stjörnurnar njóta lífsins á Coachella-hátíðinni.
Stjörnurnar njóta lífsins á Coachella-hátíðinni. Vísir/Gettyimages
Það er aldeilis hægt að ylja sér við myndirnar frá tónlistarhátíðinni Coachella sem haldin er þessa dagana í steikjandi hita og sól í Kaliforníu. Fjölmargir leggja leið sína á hátíðina sem fór fram um helgina og heldur áfram þá næstu.

 

Frægasta tónlistarfólk í heiminum í dag kemur fram á hátíðinni eins og Arcade Fire, Muse, Pharrell Williams, Lorde, Lana del Rey og Ellie Goulding.

Komu óvænt fram

Söngkonan Beyonce kom óvænt fram á tónlistarhátíðinni í ár er hún steig á svið með litlu systur sinni Solange.

Systurnar dönsuðu saman við lagið Losing You við mikinn fögnuð áhorfenda. Poppdívan hefur áður komið fram á hátíðinni en var ekki á dagskránni í ár og því ákveðinn bónus fyrir áhorfendur að sjá þær systur saman á sviðinu.

Eiginmaður Beyonce, Jay Z, ákvað líka að koma óvænt fram á hátíðinni en hann stal senunni á tónleikum rapparans Nas og tóku þeir lögin Dead Presidents II og Where I’m From.

Pharrell Williams tók að sjálfsögðu með sér hattinn.
Coachella

- Fyrsta tónlistarhátíðin var árið 1999 og þá kostaði miðinn 50 Bandaríkjadali fyrir hvern dag.

- Hátíðin tapaði svo miklu fyrsta árið að henni var frestað árið eftir og þráðurinn tekinn upp á ný árið 2001.

- Árið 2003 voru gestir 70 þúsund og hátíðin skilaði hagnaði í fyrsta sinn.

- Árið 2011 voru gestir 225 þúsund talsins og seldist upp á sex dögum.

- Í fyrra skilaði hátíðin 67 milljóna dollara hagnaði og hefur fest sig í sessi sem ein vinsælasta tónlistarhátíð í heimi.

Söngkonan Lorde var flott á sviðinu.
Leikkonan Emmy Rossum og söngkonan Fergie voru sumarlega klæddar.
Kendall Jenner var með óvenjulegan skartgrip.
Jared Leto var flottur í tauinu að venju.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×