Fótbolti

Sumarmessan: Ísland gæti dottið úr leik á refsistigum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sumarmessan var að venju á dagskrá Stöðvar 2 Sports í gærkvöldi en þar fóru Hörður Magnússon, Hjörvar Hafliðason og Gunnleifur Gunnleifsson yfir leiki gærdagsins á EM í Frakklandi.

Þeir félagar rýndu m.a. í möguleika íslenska liðsins fyrir lokaumferðina í riðlakeppninni.

„Það gæti komið upp rosaleg staða,“ sagði Hjörvar.

Íslendingar eru með tvö stig í F-riðli líkt og Portúgalar en með betri markatölu. Ungverjar eru á toppi riðilsins með fjögur stig en Austurríkismenn reka lestina með eitt stig.

Sjá einnig: Hjörvar fer yfir slakan árangur Lars á stórmótum

„Ef Portúgalir gera 1-1 jafntefli við Ungverja og við gerum 0-0 jafntefli við Austurríkismenn, þá er allt jafnt. Við og Portúgalir erum þá með jafn mörg stig, jafna stöðu í innbyrðisviðureignum og jafn mörg mörk skoruð.

Staðan í riðlunum sex á EM.vísir/skjáskot
„Veistu hvað mun þá ráða úrslitum? Refsistig. Og við höfum fengið fleiri gul spjöld en Portúgalir og ef sú ótrúlega staða kemur upp fara þeir áfram á færri refsistigum, nema þeir fái fullt af gulum spjöldum í lokaleiknum.“

Eftir fyrstu tvær umferðirnar í riðlakeppninni hefur Ísland fengið fimm refsistig (eitt gult spjald gefur eitt refsistig) en Portúgal aðeins tvö.

Sjá einnig: Rýnt í möguleika Íslands: Fínir möguleikar á sæti í 16-liða úrslitum

Hjörvar segir að íslenska liðið eigi að nálgast leikinn gegn Austurríki á miðvikudaginn af varkárni.

„Auðvitað spilum við bara varnarleik gegn Austurríki, því ef við náum að halda 0-0 stöðu þar til 5-6 mínútur eru eftir munu Austurríkismenn taka mikla áhættu því sigur er það eina sem mun duga þeim til að komast áfram,“ sagði Hjörvar.

Innslagið í heild sinni má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×