Fótbolti

Sumarmessan: Ari Freyr inn fyrir Jóa Berg gegn Nígeríu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ísland mætir Nígeríu í Volgograd í öðrum leik riðlakeppninnar á HM á föstudag. Strákarnir í Sumarmessunni á Stöð 2 Sport fóru yfir líklegt byrjunarlið Heimis Hallgrímssonar.

Þeir veðjuðu á nákvæmlega sömu uppstillingu og í leiknum gegn Argentínu nema Ari Freyr Skúlason kemur inn fyrir Jóhann Berg Guðmundsson, sem missir af öllum líkindum af leiknum vegna meiðsla.

Gunnleifur Gunnleifsson sagðist halda að Ari kæmi þar inn fyrir Jóhann þar sem Heimir sé kominn í þann vana að hafa örfættan mann á hægri kanti og réttfættan á vinstri kanti.

Aron Jóhannsson sagði þetta vera 10 af 11 rétt en Instagram stjarnan Rúrik Gíslason komi inn fyrir Jóhann Berg en ekki Ari Freyr.

Ísland og Nígería mætast klukkan 15:00 að íslenskum tíma á föstudag og verður leikurinn í beinni textalýsingu á Vísi.

Sumarmessan er á dagskrá á Stöð 2 Sport klukkan 21:00 að kvöldi hvers leikdags á HM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×