Lífið

Sumarlífið: Rífandi stemning á Sneakerball

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hið margumtalaða Sneakerball Nike-teiti fór fram í Gamla Bíói á föstudagskvöldið og að sjálfsögðu var Sumarlífið á staðnum.

Davíð Oddgeirsson var mættur í partíið  og var öllu tjaldað til. Mikill stemning var á svæðinu og nokkrir í svakalegum gír. Davíð hitti vel valda gesti og fóru sumir þeirra á kostum.

Mikið var lagt í tónlistaratriðin en þeir sem komu fram eru Gísli Pálmi, Úlfur Úlfur og Benni B-Ruff.

Sneakerball-partí sem þessi eru haldin víðs vegar um heim til að kynna vörumerkið Nike og þurfa þeir aðilar sem sækja partíið að vera í Nike-skóm.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×