Lífið

Sumarlífið: Mikil stemning á Snoopadelic í Höllinni

Atli Ísleifsson skrifar
Davíð og Arnar í Sumarlífinu mættu í Laugardalshöllina á fimmtudagskvöldið þar sem rapparinn Snoop Dogg hélt Snoopadelic partý ásamt gestum.

Á fimmtudag voru einmitt tíu ár upp á dag frá því Snoop kom síðast fram hér á landi á tónleikum í Egilshöll.

Snoop á sviðinu í Höllinni.
Mikil stemning var innan hallar sem utan þar sem ungir piltar á hjólabrettum voru teknir tali.

Davíð og Arnar ræddu auk þess við liðskonur danshóps sem voru að undirbúa sig fyrir tónleika kvöldsins.

Stelpurnar virtust renna nokkuð blint í sjóinn, enda Snoop ekki með fyrirframmótað prógramm og spilar mest eftir eyranu. Þær sögðust þó hlakka mikið til.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×