Lífið

Sumarlífið: „Í dag erum við stoltar druslur“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sumarlífið var að sjálfsögðu mætt í Druslugönguna á laugardaginn. Ósk Gunnarsdóttir og Davíð Arnar Oddgeirsson voru því mætt á sinni stað og heyrðu hljóðið í nokkrum þátttakendum og skipuleggjendum.

„Við byrjuðum fyrr í ár að undirbúa allt og vinnan hófst í febrúar,“ segir Sunna Ben, ein af skipuleggjendum Druslugöngunnar.

„Þetta er ótrúlegt að magnað að sjá tuttugu þúsund manns í varningi sem maður hannaði,“ segir Helga Dögg, sem er einnig ein af skipuleggjendunum. Hún hannaði þær húfur og boli sem voru til sölu í aðdraganda göngunnar og í göngunni sjálfri.

„Það er því miður allt of mörg dæmi um það að samfélagið hafi brugðist þolendum sem stíga fram og segja sína sögu,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri.

„Það sem þessi hópur er að gera er að snúa þessu hugafari við og hann hefur sýnt ótrúlegt hugrekki og þetta er að breyta samfélaginu. Þetta undirstrikar að við segjum nei við ofbeldi og það gerir samfélagið betra.“


Tengdar fréttir

Réttlætisgangan

Í Druslugöngunni er gengið til réttlætis og betri tíma. Druslugangan er frelsun frá skömm sem átti aldrei heima hjá þolendum en alltaf hjá gerendum.

Við köllum eftir breytingu

Skömminni sem alltof oft lendir á herðum þolenda kynferðisofbeldis. Sú skömm á heima hjá gerendum í öllum tilvikum.

Kærastan mín, druslan

Því miður virðist réttarkerfið hannað til að þagga niður í fórnarlömbum kynferðisofbeldis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×