Innlent

Sumarið framlengt: Landsmenn hvattir til að nýta veðurblíðuna

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Íslendingar víðast hvar á landinu gætu fengið tækifæri til sólbaða næstu daga ef fram fer sem horfir.
Íslendingar víðast hvar á landinu gætu fengið tækifæri til sólbaða næstu daga ef fram fer sem horfir. Vísir/Eyþór
Veður verður með besta móti víðast hvar á landinu í vikunni, að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Hann gerir ráð fyrir nokkurri framlengingu á sumrinu, yfir 20 stiga hita á einhverjum stöðum næstu daga, en svo snýst þó upp í bleytuspá um helgina.

„Það verður fínasta veður í vikunni, dettur kannski í 20 stig einhvers staðar yfir daginn,“ segir Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands í samtali við Vísi. Hann segir besta veðrið að öllum líkindum verða á Vesturlandi á miðvikudag og fimmtudag en á morgun verður einna bjartast á höfuðborgarsvæðinu.

Þá mælir Þorsteinn sérstaklega með því að landsmenn nýti góða veðrið á meðan það varir.

„Það er um að gera að nota þessa viku vel, þetta verður sennilega ágætasta sumarveður. Á morgun verður bjartast sunnan- og vestanlands en gæti þykknað svolítið upp fyrir norðan, þetta skiptist svona á.“

Sumarveðrið víkur fyrir lægð um helgina

Á föstudag fer þó að þykkna upp vestan- og sunnanlands með vætu. Þá er almenn bleytuspá um helgina, með tilheyrandi rigningu og stífum vindi víðast hvar, en á Norðurlandi gæti aftur á móti haldist þurrt að mestu.

Aðspurður segir Þorsteinn haustið þó ekki alveg handan við hornið.

„Nei, það kemur ekki alveg strax en það virðist vera einhver meiri óróleiki í veðrinu í næstu viku, það eru hérna djúpar lægðir á siglingu.“

Hér að neðan má sjá veðurhorfur næstu daga samkvæmt vef Veðurstofu Íslands:



Á miðvikudag og fimmtudag:

Austankaldi með suðurströndinni, annars hægviðri. Sums staðar skýjað við sjávarsíðuna, en annars léttskýjað. Hiti 8 til 19 stig, hlýjast á V-landi, en svalast á Austfjörðum. 

Á föstudag:

Hægir vindar og bjart með köflum A-til, en suðaustankaldi og dálítil væta V-lands. Hiti 10 til 17 stig að deginum, hlýjast NA-til. 

Á laugardag og sunnudag:

Útlit fyrir ákveðna suðaustanátt með rigningu, en lengst af þurrviðri fyrir norðan. Áfram milt veður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×