Körfubolti

Sumardeildin í Vegas farin af stað | Myndbönd

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Brandon Ingram lofar góðu
Brandon Ingram lofar góðu vísir/ap
Forkeppni sumardeildar NBA í Las Vegas hófst í nótt þar sem nýliðar og aðrar vonarstjörnur sýna hvað í þeim býr í fyrsta sinn á NBA sviðinu.

Nú um helgina keppa liðin í forkeppni en aðalkeppnin hefst í næstu viku og er liðunum raðað í styrktarröð eftir gengi þeirra um helgina.

Í sumardeildinni leika oftast leikmenn sem eru á fyrsta eða öðru ári sínu í deildinni auk fjölda leikmanna sem eru að reyna að komast í deildina. Þó er einn leikmaður með átta ára reynslu í deildinni að leika með Houston Rockets.

Michael Beasley skoraði 7 stig á rúmlega 20 mínútum og tók 9 fráköst fyrir Rockets sem tapaði 83-78 fyrir Atlanta Hawks.

Brandon Ingram sem Los Angeles Lakers valdi annan í nýliðavalinu í byrjun sumars þótti sýna lipra takta er Lakers rúllaði yfir New Orleans Pelicans 85-65.

Ingram skoraði 12 stig, tók 4 fráköst og varði 2 skot. Leikstjórnandinn D'Angelo Russel sem Lakers valdi annan fyrir ári síðan fór fyrir liðinu með 20 stig, 11 fráköst og 6 stoðsendingar.

Buddy Hield sem Pelicans völdu með sjötta valréttinum í nýliðavalinu átti erfitt uppdráttar en hann var af mörgum talinn besti leikmaður háskólakörfuboltans síðasta vetur. Hield skoraði 13 stig en hitti aðeins úr 5 af 20 skotum sínum og þar af 1 af 8 fyrir utan þriggja stiga línuna.

Ástralski framherjinn Thon Maker sem Milwaukee Bucks valdi tíundan í nýliðavalinu átti góðan leik þegar Bucks lagði Cleveland Cavaliers 81-75. Maker skoraði 15 stig og tók 13 fráköst.

Nýliðarnir hjá Sacramento Kings, Skal Labissiére og Malachi Richardsson, heilluðu engan þegar Kings steinlá gegn Toronto Raptors 88-47.

Minnesota Timberwolves valdi leikstjórnandann Kris Dunn með fimmta valréttinum í nýliðavalinu og stal Dunn senunni í nótt þó lið hans hafi tapað 88-82 gegn skemmtilegu liði Denver Nuggets.

Dunn skoraði 27 stig, tók 5 fráköst og stal 3 boltum. Hann háði skemmtilega baráttu við annars sárs leikstjórnanda Nuggets, Emmanuel Mudiay sem skoraði 23 stig.

Einvígi Kris Dunn og Emmanuel Mudiay: Brandon Ingram:
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×