Golf

Sullivan og McIlroy mynda lokahollið í Dubai

Andy Sullivan þakkar áhorfendum eftir þriðja hring í morgun.
Andy Sullivan þakkar áhorfendum eftir þriðja hring í morgun. Getty.
Andy Sullivan er enn í efsta sæti á Dubai World Tour meistaramótinu en þegar að 18 holur eru óleiknar er hann á 16 höggum undir pari.

Rory McIlroy andar þó ofan í hálsmálið á honum en Norður-Írinn ungi kemur í öðru sæti á 15 höggum undir pari eftir frábæran þriðja hring upp á sjö högg undir pari.

Bandaríkjamaðurinn Patrick Reed er einn í þriðja sæti á tólf höggum undir pari en hann hefur verið að spila mjög vel að undanförnu og gæti hæglega blandað sér í baráttuna um sigurinn á morgun.

Dubai World Tour meistaramótið er leikið á hinu glæslega Jumeirah golfsvæði í Dubai en það er jafnframt lokamót Evrópumótaraðarinnar þetta tímabilið.

Því eru háar fjárhæðir í verðlaun en þeir 60 kylfingar sem eru meðal þátttakenda skipta með sér yfir milljarði íslenskra króna í verðlaunafé.

Lokahringurinn ætti því að verða spennandi en hann verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni frá klukkan 07:30 í fyrramálið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×